Íslensk danspör 2008

23. júlí, 2008 | Senda athugasemd»

Auður, Siggi, Sara, Rakel og égEr búinn að taka saman smá lista um danspör á Íslandi fyrir árið 2008. Ætla ekki að birta listann, því ég veit ekki hvort að öll pörin á listanum mínum séu “official” eða hvort að þau séu “ennþá”. Birti samt listann í kringum það leiti sem ég kem heim.

Á listann komust pör sem ég hef heimildir fyrir því að séu að dansa saman, og keppa í K eða F flokkum á Íslandi. Það eru nokkur pör sem ég taldi ekki með á listann þótt ég viti af þeim. Hef ástæður fyrir því sem skiljast þegar ég set listann á netið.

Það sem kom heimilisfólkinu á 26 Keira St. (semsagt Rakel, Magga og mér) mest á óvart hvað það eru mörg pör. Hljómar fáránlega, en málið er samt að í heild eru um það bil 34 pör sem keppa í einhverjum aldursflokki í K eða F flokkum. Lang flest pörin eru í Youth/Adult, og eru flest pör í DÍH, en það munar ekki um nema 1 pari á DÍH og Dansfélagi Reykjavíkur.

Virðist vera sem þeir yfirburðir sem talað hefur verið um að DÍH hafi haft, varðandi fjölda para að gera, séu annaðhvort ýktir eða að jafnast út á milli hinna félaganna. DÍH og Dansfélag Reykjavíkur eru samt stærstu félögin með nær tvöfalt fleiri keppnispör en hinir skólarnir.

Svo er bara að sjá hvernig keppnirnar fara á tímabilinu sem fer að byrja!

9. sæti í Blackpool

23. júlí, 2008 | 1 Athugasemd »

Ásta og PrzemeckVar að rifja upp úrslitin í Blackpool og mundi þá allt í einu eftir því að Ásta og Przemeck voru í semi-final í Amateur Latin. Var að fletta þessu upp núna og þau náðu að taka 9. sætið. Það er held ég bara það lang besta sem íslenskur dansari hefur gert í Blackpool.

Elísabet náði sínu besta með Robin Sewell og þau náðu 24. sæti, Adam og Karen kepptu aldrei sem Amateur en náðu í 24. sæti í Professional Latin og 20. sæti í Professional Ballroom.

Verst er samt að Ásta og Przemeck eru ný hætt að dansa fyrir Ísland og farin að dansa fyrir Pólland. Það hefði verið svo awesome að hafa par fyrir Ísland í semi-final í Blackpool. Skandall.

Netið komið á Keira St.

23. júlí, 2008 | 1 Athugasemd »

Núna er netið komið á Keira St.. Ég og Maggi vorum í tölvunum í allan gærdag og fórum í gegnum allar hugsanlegar vefsíður. Búinn að ná að laga mest af blogginu mínu, sem fór allt í rugl um daginn. Veit ekki hvað gerðist almennilega en núna get ég skrifað aftur.

Lífið í Ástralíu gengur rólega. Adam og Karen eignuðust dóttur í morgun reyndar. Á eftir að fara og sjá hana, geri það í dag eða á morgun. Svo er Jón Eyþór farinn heim. Voða spontant ákvörðun samt. Datt það í hug á föstudegi, bókaði nýtt flug á laugardegi og fór á sunnudegi. Pínu svona survivor stemmning, að missa einn úr íbúðinni á Keira St.. The tribe has spoken.

Dansinn gengur vel og við erum búin að geta unnið rosalega vel með Adam undanfarna mánuði. Hentugt líka að ná upp góðri samvinnu núna þar sem þau koma til Íslands í nokkra mánuði næsta vetur. Það er líka búið að vera gott að skipta um umhverfi í dansinum. Komast aðeins burt frá því sem er búið að vera í gangi síðustu mánuði.

Ég hlakka samt ekkert smá mikið til að komast heim. Hitta alla, fara að vinna, byrja í skólanum og fá að sofa í rúmi. Búinn að vera að sofa á dýnu á gólfinu síðan 1. júní. Mmmmm.

Video blogg

17. maí, 2008 | Senda athugasemd»

Ég keypti mér video kameru um daginn. Hef takmarkað notað hana þetta rúma ár sem ég er búinn að eiga hana, en núna er held ég komið að því. Tók hana með mér og ætla ég að nota hana til að video blogga í ferðinni.

Var að klára að bæta við video blogg eiginleikanum á þetta útlit (sem ég er nnþá að fínpússa, breyta og bæta við). Núna er reyndar ekkert videblogg heldur myndbrot af Peter og Kristin að dansa Rumba á World Super Stars 2007. Myndbandið er staðsett í hliðarslánni fyrir þá sem ekki sjá. Tölvan þarfnast Adobe Flash spilara til að geta spilað myndbandið. Það eru ekki nema 2% af öllum tölvum í heiminum sem eru ekki með þannig spilara, og ég efa að einhverjir af þeim sem skoða vefinn séu í þessum hópi. (Tölur frá Adobe.com).

Aarhus, Danmörk

17. maí, 2008 | Senda athugasemd»

Er staddur í Danmörku núna. Í Århus. Kom á fimmtudagskvöldið og Gunni tók á móti okkur á lestarstöðinni. Vorum ekki búin að vera hérna nema í svona 5 mín þegar fullur dani ætlaði að fara að lemja okkur, hefði ekki verið fyrir félaga hans sem var þarna líka (sem vildi ekki lemja ferðamenn) hefðum við öll verið tekin í spað. Alveg pottþétt mál því þeir fóru bara á næsta gæja við hliðiná sem var tekinn í gegn. Góðar móttökur.

Fyrsta æfingin var í gærkvöldi. Mjög góð æfing, og skemmtileg líka. Reyndar pínu stress einhvernveginn í manni, veit ekki alveg afhverju, ekkert nýtt að gerast. Var bara einhvernvegin miklu meiri nálægð við öll góðu pörin (eins og Peter og Kristin, Martino og Michelle of fl.). Önnur æfing af 4 í kvöld og verður hún pottþétt miklu betri og afslappaðri fyrir mig. Tækla þetta af krafti.

Bara smá status report.

Ætli það sé ekki svona talent hérna heima?

9. maí, 2008 | Senda athugasemd»

Kallar þetta ekki á launahækkun?

7. maí, 2008 | Senda athugasemd»

Frétt MBL um aukin hagnað TOTALEins og venjan hjá mér er á morgnanna að þá les ég fréttir. Ekki bara venjulegar fréttir heldur líka dansfréttir eins og sjá má á færslunni á undan (Maurizio og Melinda orðin PRO). Það sló mig samt að lesa MBL.is áðan. Ekki bankaránið og ekki að lögreglumenn Lundúnar hafi skotið mann í fljótfærni… heldur að TOTAL hafi skilað18% hærri hagnaði í ár en á sama tíma í fyrra!

Í fréttinni segir meðal annars:

Nam hagnaður Total, [...], 3,6 milljörðum evra á fyrsta ársfjórðungi samanborið við 3,05 milljörðum evra á sama tímabili í fyrra.

Kallar þetta ekki á feita launahækkun fyrir starfsmenn??

*Uppfært 7. maí kl 11.48*
Fyrir þá sem ekki vita vinn ég semsagt fyrir Total, sem er sjoppa í Hafnarfirði.

Maurizio & Melinda

7. maí, 2008 | Senda athugasemd»

Eftir að hafa unnið nær allar mögulegar keppnir hjá IDSF hafa Maurizio og Melinda (núverandi heims- og evrópumeistarar) ákveðið að gerast Professional. Þetta kemur held ég engum á óvart, þetta gerist alltaf við heimsmeistaran í Amateur, þeir gerast PRO.

Verður samt gaman að sjá hvernig þetta á eftir að ganga upp hjá þeim. Núna er komið svo mikið af sterkum pörum í PRO og stýllinn hjá öllum sem fara í Amateur í PRO breytist yfirleitt rosaleg á fyrsta árinu þar. Sem dæmi eru Peter og Kristin allt annað par finnst mér eftir að þau fór að keppa sem atvinnumenn. Það hættir þetta IDSF / sport-dance kjaftæði og fólk fer að vilja sýna meira en að þau hafi nægt úthald.

Fyrirlesturinn

7. maí, 2008 | Senda athugasemd»

Í kvöld var haldinn fyrirlestur á vegum DSÍ. Fyrirlesturinn bar titilinn Dance In Timing - Ballroom and Latin og er eftir Jesper Fredriksen sem dæmdi núna á síðustu keppni. Fyrirlesturinn var frá 18.00 - 00.15, og voru aðeins 4 sem kláruðu allan fyrirlesturinn.

Þetta var áhugaverður fyrirlestur. Margt sem ég get ekki verið sammála, margt sem ég þarf að hugsa mjög mikið um til að sannreyna hvort að gæti átt við, og nokkrar staðreyn dir sem hann bennti á og voru mjög athyglisverðar.

Hausinn alveg í ruglinu. Er með afrit af fyrirlestrinum. Á eftir að fara vel í gegnum þetta allt saman á morgun og næstu daga. Rúmir 6 klukkutímar af efni er ekkert smá.