Dansarinn.net
Jón og Denise hætt að dansa saman
Jón Eyþór Gottskálksson og Denise Margrét Yaghi hafa ákveðið að hætta að dansa saman. Þau dönsuðu saman í þrjú ár og náðu góðum árangri. Þau voru Íslandsmeistarar í standard dönsum 2010 og 2011, Íslandsmeistarar í 10 dönsum árið 2009 og í öðru sæti á Íslandsmeistaramótinu í suður-amerískum dönsum árið 2011. Þau eru bæði að leita sér að nýjum dansfélögum.
Litla Blackpool, Junior Blackpool og Bikarmeistaramót
Mér finnst alveg frábært hvað margir eru spenntir fyrir að lesa pistlana sem ég sendi frá mér.  Ég fæ fyrirspurnir frá keppendum, foreldrum og jafnvel þjálfurum um það hvenær næsti pistill kemur.  Ég hef sagt það áður að ég skrifa þessa pistla fyrir mig en að sjálfsögðu finnst mér gaman að aðrir hafi gaman af þeim líka.
Þessi pistill er svolítið stórt verkefni þar sem ég ætla að fjalla um 3 mót en ég reyni að blanda þessu saman og vonandi kemur eitthvað skemmtilegt út úr því.
„LITLA BLACKPOOL“
Byrjum á að fjalla um „litlu Blackpool“.  Þetta var í fyrsta skipti sem þessi keppni var haldin og miðað við hvernig keppnin gekk fyrir sig þá er mjög líklegt að hún verði haldin aftur á næsta ári.  Keppnin var með „Blackpool“ sniði þ.e. klæðareglur voru eins og í Blackpool, röðin á dönsunum eins og í Blackpool og við notuðum Blackpool lög í keppninni.  Keppendur og gestir voru mjög ánægður með framkvæmd mótsins og tímaáætlun stóðst upp á mínútu eins og við var að búast.  Keppnisflokkar voru eins og í Blackpool þ.e. juvenile 11 ára og yngri, junior 12-15 ára og amateur 16 ára og eldri.  12 pör í juvenile, 7 pör í junior og 5 pör í amateur.  Liðakeppnin í lokin var svo hápunkturinn þar sem blandað var í liðin á staðnum og svo fengum við 3 af eldri pörunum til þess að vera „liðstjórar“.  Sigurliðið fékk páskaegg á mann og líka liðstjórarnir c“)
Sigurvegarar í juvenile voru Árni Geir Óskarsson og Sóley Hilmarsdóttir bæði í latin og ballroom.  Þau dönsuðu vel þennan dag og áttu sigurinn skilið.
Sigurvegarar í junior latin voru Pétur Fannar Gunnarsson og Þorbjörg Valdimarsdóttir.  Þau dönsuðu mjög vel og geislaði af þeim sjálfstraustið og dansgleðin.  Sigurvegarar í junior ballroom voru Eyþór Andrason og Marta Carrasco.  Þau eru á góðri siglingu þessa dagana og hafa mikinn metnað og áhuga.  Þau eru á leiðinni á keppni og í tíma í Bandaríkjunum í sumar og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Sigurvegarar í amateur ballroom voru Ármann Hagalín Jónsson og Erna Pálsdóttir eftir harða keppni við Jón Ingvar Karlsson Brune og Elísabetu Bjarnadóttur.  Ármann og Erna hafa sýnt það að þau langar til þess að ná langt í dansinum og fóru t.d. til London í apríl í tíma og á æfingar og verður gaman að sjá hvernig þeim tekst að vinna úr þeim hlutum í sumar og þá ættu þau að koma sterk inn í haust.
Sigurvegarar í amateur latin voru Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Óladóttir.  Þau voru öruggir sigurvegarar en ég hef séð þau dansa betur.  Siggi sagði mér að hann hefði verið slappur um morguninn og þau ekki getað gefið sig í dansinn.  Mér finnst þau hafa tekið sig mikið á í notkun á tónlistinni og notkun á dansgólfinu.  Mér finnst þau geta gert enn betur og hlakka ég til að sjá hvernig þau ætla nýta Blackpool ferðina og svo sumarið til æfinga.  Hlakka líka til að heyra og sjá hvað kemur út úr tímunum sem þau eiga bókaða í London í sumar.
JUNIOR BLACKPOOL
Eins og margir vita þá er ég búinn að vera viðloðandi dansinn á Íslandi í um 30 ár og mér finnst svo frábært að ég skuli ennþá hafa svona gaman af því að kenna, horfa á keppnir og bara standa í öllu umstanginu í kringum dansinn.  Yngra Blackpool er alltaf skemmtilegt og spennandi, stundum erum við með keppendur í fremstu röð en stundum þurfum við að vera þolinmóð og gefa þeim tækifæri til þess að þroskast og koma svo enn sterkari til leiks að ári.  Þessi keppni var pínulítið svoleiðis, enginn í úrslitum en nokkrir alveg við það.  Þau pör sem komust lengst í þessari ferð voru í juvenile Aron og Alma, Elvar og Sara og Eyjólfur og Ólöf Edda.  2 af þessum pörum eru ekki nema 9 ára og eiga því 2 ár eftir í juvenile flokknum.  Ef allt gengur vel þá gætum við átt 2-3 pör í úrslitum í juvenile í Blacpool árið 2013 c“)
Í junior 12-15 ára þá voru Höskuldur og Margrét, Andri Fannar og Stella, Gulli og Malín, Davíð og Rakel, Pétur og Þorbjörg, Gísli og Aníta, Kristófer og Herborg og Birkir og Perla að ná bestum árangri en í junior 12-13 ára þá voru það Davíð og Rakel, Pétur og Þorbjörg, Gísli og Aníta, Höskuldur og Margrét og Eyþór og Marta sem náðu lengst.  Allt eru þetta krakkar sem eru fæddir 1998 og 1999 og eiga framtíðina fyrir sér í dansinum.
MAÍMÓTIÐ
Síðasta mót vetrarins og alltaf spennandi að sjá hvað krakkarnir gera svona í lok vetrar.  Hérna á árum áður þá var það yfirleitt marsmótið sem var með öðruvísi úrslit en í sumum flokkum þá var það maímótið.  En ég er búinn að vera nógu lengi í þessu til þess að sjá og vita að á hverju móti eru 5-11 dómarar sem dæma eftir þeirra tilfinningu, þekkingu og reynslu og það er bara oft mjög mismunandi.  Mótið tókst að flestu leyti mjög vel, alltaf einhverjir smá hnökrar en ekkert sem skemmdi neitt fyrir keppendum.  Góður dans í mörgum flokkum og gaman að sjá fjöldann í yngri flokkunum og verður gaman að fylgjast með hverjir heltast úr lestinni og hverjir gefa enn meira í og stefna hærra.  Að venju ætla ég að kommenta á F flokkana og svo þá flokka sem mig langar að kommenta á.
Börn I K – Loksins bættist par í þennan hóp og þá var hægt að halda keppni.  Gabríel og Sigrún hafa verið að keppa ein í þessum flokki síðan í janúar og ég held að þegar samkeppnin er engin að þá sé pressan á að verða betri ekki mikil.  Mér fannst Gabríel og Sigrún og Gylfi og Emma vera nokkuð jöfn bæði í ballroom og latin og það endaði með því að Gylfi og Emma unnu latinið og Gabríel og Sigrún ballroomið.  Gaman að minnast á að fyrir ári síðan þá voru Gylfi og Emma að keppa í Börn I B flokki c“)  Efnilegir krakkar sem eiga framtíðina fyrir sér.
Börn II K – Þessi hópur verður bara sterkari og sterkari með tímanum.  10 pör og öll virðast vera að æfa vel og vinna vinnuna sína.  Elvar og Sara unnu þetta nokkuð örugglega bæði í ballroom og latin en svo komu Eyjólfur og Ólöf Edda þar á eftir.  Bæði pör sem eru vandvirk í dansinum og þurfa bara meiri kraft og þá geta þau náð enn lengra.
Unglingar I K – Í þessum flokki hefur keppnin staðið á milli Björgvins og Hörpu og Bjarna og Alexíu.  Í þetta skiptið þá unnu Björgvin og Harpa ballroomið og Bjarni og Alexía latinið.  Er að vissu leyti sammála þar sem mér finnst Björgvin og Harpa vera sterkari í ballroom og Bjarni og Alexía sterkari í latin.  Björgvin og Harpa hafa mýktina og flotið en vantar svolítið upp á kraft og snerpu sem aftur á móti Bjarni og Alexía hafa.
Unglingar I F – Sumir af þessum krökkum hafa sýnt það og sannað að þau erum á meðal bestu dansara í heiminum í sínum árgangi.  Ef þau halda svona áfram og kannski aðeins meira þá getum við átt nokkur pör í úrslitum í stærstu keppnum í heiminum á næstu árum.  Pétur og Þorbjörg unnu latinið nokkuð örugglega en alls ekki hreint.  Gísli og Aníta í 2. sæti sem þau hljóta að vera ánægð með.  Eyþór og Marta komu örugglega nokkrum á óvart með að vinna ballroomið en hef heyrt frá mörgum að þeim hafi fundist þau eiga það skilið.  Eyþór og Marta unnu 3 dansa, jöfn í 1. sæti í einum og 2. sæti í einum.  Höskuldur og Margrét komu í 2. sæti og hef ég oft séð þau dansa betur.  Mér fannst þau ekki alveg vera í stuði á þessari keppni og veit ég að Jói mun fara ofan í saumana á þeim og reikna ég með þeim öskrandi hungruðum í haust c“)
Unglingar II F – Ég hef fengið hvað harðasta gagnrýni út af skrifum mínum varðandi þennan flokk.  Fékk gagnrýni fyrst fyrir að skrifa um pörin og svo ákvað ég síðast að skrifa bara hver hafði unnið og þá fékk ég gagnrýni fyrir að skrifa ekki um pörin c“)  Birkir og Perla eru enn öruggir sigurvegarar í þessum flokki og er ég enn að bíða eftir að pörin fyrir aftan virkilega langi til þess að skáka þeim.  Sumarið er tíminn til þess að gera eitthvað í sínum málum.  Það vita allir að flestir æfa vel á veturna þegar keppnir eru en þeir sem æfa best á sumrin geta uppskorið ríkulega að haust sem getur þá skilað sér út allan veturinn.
Ungmenni F – Nýtt par Freyþór og Hrefna öruggir sigurvegara bæði í ballroom og latin og unnu hreint í ballroominu.  Hefði ekki alveg giskað á fyrir nokkrum árum að Freyþór væri öruggur sigurvegari í ungmennum F en hann á það svo sannarlega skilið og óska ég honum og Hrefnu alls hins besta í framtíðinni.  Þau eiga eftir að stilla sig aðeins meira saman í ballroominu, tók eftir smá þreytu í toppnum og svo þurfa þau að vinna á snerpu og krafti í latininu.  Andri og Stella í 2. sæti og hefur mér fundist upp á síðkastið að þetta sé pínulítið erfitt hjá þeim í ballroominu og það gæti verið að Stella þyrfti að rétta betur úr sér eða þá að Andri þurfi að vera með sterkari ramma.  Þetta þurfa þau að sjálfsögðu að fara yfir með sínum þjálfara.  Valentín og Ástrós hafa náð mikið betur saman með tímanum.  Ástrósu hefur flogið fram og ef hún heldur svona áfram þá gæti hún náð öllum markmiðunum sem hún hefur sett sér.  Langar til að sjá þau ná enn betur saman og langar að sjá Valentín gefa Ástrósu enn meiri tíma og pláss til þess að hún njóti sín enn betur.  Ármann og Erna eru á góðri siglingu og eins og ég minntist á hérna fyrr í pistlinum þá hlakka ég til að sjá hvernig þau vinna úr sínum málum í sumar til þess að koma sterk inn í haust.  Þau eru kraftmikil og lífsglöð og eiga möguleika á stórum hlutum ef þau langar það nógu mikið.
Fullorðnir F – Alltaf gaman að fylgjast með elstu pörunum.  Latinið var jafn og spennandi og vantaði ekki mikið að sigurvegararnir hefðu verið í 2. sæti og 2. sætið unnið.  Siggi og Sara unnu og þó að mér hafi fundist þó dansa vel þá fannst mér Siggi og Hanna eiga sigurinn skilið.  Þetta er ekkert persónulegt gagnvart Sigga og Söru, mér líkar mjög vel við þau og finnst þau flottir dansarar en mér finnst Siggi og Hanna búa til miklu dýpri hreyfingar og hafa meiri dansþroska.  Sem betur erum við ekki öll alltaf sammála, það væri frekar leiðinlegt c“)
Ballroomið hélt ég að Siggi og Sara hefðu unnið örugglega en svo sé ég að það munar ekki miklu á þeim og Jóni Eyþóri og Denise.  T.d. ef írski dómarinn hefði gefið Jóni og Denise eitthvað af ásunum sem hann gaf Cameron og Thelmu þá hefðu Jón og Denise líklega unnið.  Sigga og Söru hefur farið mikið fram á þessu ári og frábært úthald sem þau hafa.  Held að þau séu búin að dansa saman í 11 ár eða svo og mér finnst stöðugleiki skipta ofboðslega miklu máli í dansinum og eiga pör að dansa saman eins lengi og þau mögulega geta.  Jón og Denise virkuðu frekar þung á sér og spjallaði ég við Jón um hægri hliðina á honum eftir 1. umferðina en svo fannst mér hún vera miklu betri í úrslitum.  Hann ætti að athuga hvað hann getur gert í þessu t.d. getur þetta verið hliðarnar á Denise, hvar þyngdarpunkturinn er á Denise en svo getur þetta líka verið áherslan hjá Jóni á hægri hliðina, kannski ætti hann að hugsa meira um vinstri hliðina c“)
Þá er þetta komið í bili.
Ágætur árangur íslenskra dansara í Blackpool
Blackpool Junior Dance Festival fór fram dagana 25. – 29. apríl síðastliðna. Fjöldi íslenskra dansara tóku þátt í mótinu og náðu margir þeirra góðum árangri.
Bestum árangri náðu líklega Andri Fannar Pétursson og Stella Karen Árnadóttir, sem dönsuðu í 12 para undanúrslitum í Junior Jive keppni og höfnuðu í 11. – 12. sæti, Davíð Bjarni Chiarolanzio og Rakel Matthíasdóttir, sem dönsuðu í 16 para undanúrslitum í Junior Samba og höfnuðu í 12. – 15. sæti, og Pétur Fannar Gunnarsson og Þorbjörg Valdimarsdóttir sem höfnuðu í 16 sæti í sömu keppni.
Íslendingar áttu einnig tvö íslensk pör í 12 para undanúrslitum í keppni 12 og 13 ára í suður-amerískum dönsum en Pétur Fannar og Þorbjörg höfnuðu í 7. sæti og Davíð Bjarni og Rakel í 10. – 11. sæti. Davíð og Rakel urðu þá einnig í 9. sæti í flokki 12 og 13 ára í standard-dönsum.
Birkir og Perla í 16. sæti á HM Junior í 10 dönsum
Birkir Örn Karlsson og Perla Steingrímsdóttir urðu í 16. sæti á heimsmeistaramóti IDSF í flokki unglinga II í 10 dönsum í Barcelona á Spáni 22. apríl síðastliðinn. Alls tóku 35 pör þátt í keppninni en aðeins eitt par frá hverju landi fær keppnisrétt á mótinu.
Meðal dómara á mótinu var Adam Reeve frá Íslandi.
Sigurður og Sara í 21. sæti á EM í 10 dönsum
Sigurður Már Atlason og Sara Rós Jakobsdóttir, frá Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar, enduðu í 21. sæti á Evrópumeistaramóti IDSF í 10 dönsum sem fram fór í Moskvu í Rússlandi á laugardag.
Sigurvegarar á mótinu voru Timur Imametdinov og Ekaterina Nikolaeva frá Rússlandi og í öðru sæti voru Bjorn Bitsch og Ashli Williamson frá Danmörku.
Níels skrifar: Evrópumeistaramót IDSF
Alþjóða dansíþróttasambandið (IDSF) bauð mér á dögunum að dæma á Evrópumeistaradanskeppni í Latín dönsum árið 2011 í Marseille, Frakklandi. Það að vera beðinn  af þessum samtökum um að taka þátt í dómarastörfum er ein sú mesta viðurkenning sem ég hef fengið fyrir mín störf í dansi.
Ísland er umtalað í heimi dansins fyrir  hæfileikamikla dansara .
Samferða mér á þessa  danskeppni voru þau: Jón Eyþór Gottskálksson, Denise Yaghi, Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Ólafsdóttir, en þau voru þátttakendur í danskeppninni. Góðir og flottir fulltrúar fyrir okkur Íslendinga í danskeppninni.
Þessi tiltekna danskeppni hófst hjá mér með flugi til London og þaðan eftir nokkra klukkustunda bið á flugvellinum var haldið af stað til Marseille, Frakklandi. Lending var um kl. 18:00 Móttaka á flugvellinum var til staðar og var ég ásamt dómara frá Póllandi fluttur á Holiday Inn hótelið í miðborginni. Þar var allt til staðar og matur fyrir alla dómara kl. 20:00 um kvöldið.
Laugardaginn 26.3.2011 var farið með alla dómara í íþróttahöllina og var komið þangað um kl 12:00 Í heimi dansins ríkir pólitík eins og annar staðar, ég verð að viðurkenna að það var gaman fyrir mig að vera með stóru strákunum-  eða þannig, ef litið er á að þarna eru þeir sem ráða í heimi dansíþróttarinnar. Vera mín með umdeildustu mönnum í dansíþróttaelítunni var undarleg í upphafi laugardagsins.
Þessir menn eru vafalaust alltaf á varðbergi varðandi skoðanir og samskipti við aðra í íþróttahreyfingunni hvort heldur áhugamenn eða atvinnumenn. Þess vegna getur það verið varasamt að sletta fram áliti án þess að ígrunda málið fyrst.
Persónulega kann ég að meta sterkar skoðanir þeirra og tel að betri árangur sé í nánd í mörgum málum dansins. Ég hafði mjög gaman af að fylgjast með ýmsum umræðum og gat ég ekki betur skilið en að íslensku  innleggi hafi verið vel tekið.
Það hljómar undarlega, en í veikleika okkar liggur styrkurinn, af því að við erum svo fámenn. Við höfum ekki efni á því að vanvirða og hunsa skoðanir og álit hvers annars, við verðum að hlusta á og ígrunda hugmyndir sem koma frá þeim sem leggja rækt við dansinn, þar kemur styrkurinn, styrkurinn í samvinnu, jafnvel þó svo við séum ekki sammála á öllum sviðum, þá mun grunn línan efla okkur til framfara.
Forsvarsmönnum IDSF og dómurunum í keppninni, fannst það hreinasta snilld að á Íslandi skuli dans vera kominn sem kennslugrein í grunnskólana hjá okkur og að Ísland sé því leiðandi á þessu sviði, einnig fannst þeim frábært að styrkurinn sem kemur frá bæjarfélögum fyrir íþróttaiðkendur, sé líka ætlaður fyrir dansíþróttaiðkendur.
Það má geta þess að ekki var talað um dansara keppninnar, meðal dómaranna, eða dans almennt nema, ferðalag þessara manna á danskeppni til Japans, þegar stóri jarðskjálftinn og flóðbylgjan skall á. Samkvæmt lýsingu þeirra þá var þetta eins og vita mátti ein hryllileg martröð. Ekki urðu þessir aðilar fyrir flóðinu sjálfu, en skýjakljúfar sem hýstu þau sveifluðust um 5 metra til hliðar og ekki nokkur leið fyrir neinn að standa uppréttur. Skelfingu lostnir dansarar, dómarar og aðrir þorðu ekki að festa  svefn, nema fullklæddir í móttökusal hótelanna. Það mun taka langan tíma fyrir þau að jafna sig á þessari lífsreynslu. Eitt af lokaverkum danskeppninnar í Frakklandi þann 26.3. var að minnast atburðanna með 1 mínútna þögn.
Eyjafjallajökull og gosið kom að sjálfsögðu á dagskrá, þá aðallega varðandi framburð á nafninu og nöfnum okkar Íslendinga. Margir af þeim sem ég ræddi við höfðu sögur að segja um tafir og breytingar sem urðu vegna gossins, sögur sem höfum heyrt frá öllum heimshornum.
Yfirdómari og stjórnandi danskeppninnar Marco Sietas hélt vel um spaðana og voru engir hnökrar á gangi keppninnar. Forseti IDSF Carlos Freitag brosmildur og glaðlegur maður setti keppnina. Dómarar í danskeppninni voru frá ýmsum löndum, Þýskalandi: Horst Beer, Búlgaríu: Svetoszar Zhekov, Frakklandi: Sandra Mosa‚ Íslandi: Níels Einarsson, Ísrael: Faina Roizman, Póllandi: Iwona Szymansska-Pavlovic, Slóvaníu: Eduard Slimak, Rússlandi: Andrej Shamshurov og Serbíu: Drag Radovanovic. Dómarar auk þessara voru í opnu keppnunum frá Austurríki: Ludwig Wieshofer, Spáni: Louis Delgado, Frakklandi: Frank Brangbourg, Ungverjalandi: Sandor Judith og Ítalíu: Capraro Benedetto.
Vikið skal að danskeppninni sem var í alla staði mjög vel skipulögð að því sem ég gat best séð. 5.000 áhorfendur voru til staðar í höllinni, lýsing og öll uppsetning var til fyrirmyndar. Dansgólfið að mínu áliti var að vísu of stórt, 200 fermetrar hefðu nægt. Bilið á milli dansaranna, á dansgólfinu, var of  mikið.
Stundum er sjónarmunur á pörunum, jafnvel svo lítilli getu á pörum sem eru í undanúrslitum og þeim sem eru í fyrstu sætunum. Þessi munur getur verið svo lítill að það gæti skipt höfuðmáli hvort parið sé í 24 para úrslitum, undanúrslitum eða úrslitum. Par sem á það til að fara of utarlega í kantinn á dansgólfinu getur og fer oft út úr sjónlínu hjá hluta af dómurunum, það getur orsakaði að parið nái ekki sjónlínu og þar með athygli og merkingu dómaranna, það sama á við, ef parið dansar á skugga svæði dansgólfsins. Oft eru sum pörin í þvögu í einu og sama horninu á dansgólfinu, þau pör gera sjálfum sér slæmt með því, sérstaklega þegar dansgólfið er of stórt, dómararnir hafa mjög lítinn tíma til að skrá og skila áliti. Það gefst enginn tími til að endurskoða dóminn.  1.2.3 málið afgreitt. Dómarar fá oft óréttláta gagnrýni þegar þeir gefa ekki því pari sem talið er uppáhald og ætti að vinna. Það á enginn fyrirfram eitthvert sæti í danskeppni. Hver keppni er sérstök og hvert par þarf að leggja sig 100% fram, frá fyrstu umferð. Ekkert par má ætlast til að fá úthlutað sæti, jafnvel þótt þú sért nemandi dómara sem dæma í sjálfri danskeppninni. Hver og einn dómari  á að fara í dómarastörf og dæma það sem hann sér í það og það skiptið. Oft er fyrir dómarann mikil martröð ef hann þorir ekki að dæma sitt par í það sæti sem er réttlátt gagnvart parinu svo og hinum pörunum.
Ein skilaboð mættu fara til allra sem eru að taka þátt í danskeppnum, hvort heldur er undirstöðu grunnspora eða í frjálsum riðlum. Góð tækni kunnátta skiptir öllu máli. Hver getur kennt dans með góðri tækni. Ég ætla ekki að skrifa um íslensku danspörin sem kepptu á þessu stórmóti, annað en það að, bæði pörin voru fyrirmyndar fulltrúar fyrir okkur Íslendinga. Þessi tvö pör Jón Eyþór Gottskálksson og Denise Yaghi svo hitt parið Sigurður Þór Sigurðsson og Hanna Rún Ólafsdóttir. Takk fyrir samflot á þessa danskeppni, þið voruð ykkur og þjóð ykkar til fyrirmyndar. Well done, gæti maður sagt á enskunni. Flugstjóranum á heimleið frá London vil ég þakka skemmtilega tilkynningu og samskipti við farþega. Ég hef aldrei hlegið jafn mikið við brottför og lendingu eins og í þessu flugi, en hláturinn glumdi í vélinni bæði við brottför og lendingu. Fyrir utan húmor, þá var flug og lendingu afbragð. Iceland Express. Takk.
Níels Einarsson.
Danskennari
IDSF European Latin – Charles-Guillaume Schmitt & Elena Salikhova Cha cha cha
Dansmarkaður næsta laugardag
Dansmarkaður á vegum Dansbúðarinnar.is fer fram næstkomandi laugardag. Þar gefst fólki tækifæri á að kaupa notaðan dansfatnað og aukahluti í umboðssölu. Um era ð ræða fatnað sem bæði núverandi og fyrrverandi dansarar eru að bjóða til sölu. Fyrirkomulagið er með þeim hætti að við erum að taka fötin í umboðssölu fyrir einstaklinga.  Ekki verður boðið upp á að koma með notaðan skófatnað.
Dansmarkaðurinn fer fram næstkomandi laugardag, 2.apríl, að Eirhöfða 12 í húsnæði Lóðaþjónustunnar. Markaðurinn hefst klukkan 11 og honum lýkur klukkan 16.
IDSF European Latin
Birkir og Perla í 2. umferð á HM unglinga